Merki Í.R.A.

Íslenskir radíóamatörar / Icelandic Radio Amateurs

Forsíða / Frontpage

Íslenski fáninn


17. september 2008

Vetrarstarf að hefjast
Nú er vetrarstarf ÍRA óðum að taka á sig mynd. Strax í næstu viku, fimmtudagskvöldið þann 25. september ætlar TF3Y Yngvi að halda erindi um staðfestingar á samböndum með stafrænum hætti, með aðstoð Logbook of the World. Þetta er það nýjasta í QSL málum og allir amatörar ættu að þekkja. Fleira spennandi er á döfunni á næstunni á vegum félagsins. Þar má nefna amatör-bíó, kynningu á nýjum vef (og veflægum samskiptakerfum), fræðsluerindi og fleira og fleira. Þetta mun skýrast fljótlega. Stjórn mun einnig á næstunni kynna nýjan vef félagsins sem hýstur verður í gagnvirku wiki kerfi ásamt því að kynna nýtt vefspjall. Þessu gætu fylgt einhverjar truflanir á vef félagsins á næstu dögum. Allir að taka frá fimmtudagskvöldið 25. september næstkomandi!

7. ágúst 2008

Vitahelgin 2008

Hin árvissa Vitahelgi verður haldin þarnæstu helgi, eða dagana 16-17 ágúst. Einhverjir munu þjófstarta og mæta á föstudeginum 15.

Þessa helgi ár hvert flykkjast radíóamatörar víðsvegar um heiminn að vitum, setja upp stöðvar sínar og loftnet og reyna að ná samböndum við aðra amatöra og aðrar vitastöðvar víðsvegar um heiminn. Þetta er bæði gert til skemmtunar svo og vegna þeirrar áskorunar sem í því felst að koma upp stöð við vita ásamt góðum loftnetum.
Frekari almennar upplýsingar um vitahelgina má finna á vef viðburðarins.

Að venju fara félagar að Knarrarósvita austan við Stokkseyri.

Undanfarin ár hefur skapast sú hefð að hafa sameiginlega máltíð á laugardagskvöldinu. Georg TF2LL mun sjóða kyngimagnaða kjötsúpu.

Fyrir utan að vera hin besta skemmtun er vitahelgin kjörið tækifæri til loftnetatilrauna. Þarna er vítt til allra átta og sjaldan sem maður fær að nota 30 metra háan turn.
Hafi einhverjir áhuga á að útbúa loftnet til að nota eða prófa um vitahelgina eru þeir beðnir um að hafa samband við undirritaðan.

Vona að sem flestir sjái sér fært að taka þátt. Sérstaklega skora ég á nýja félaga og leyfishafa að taka þátt því þetta er frábært tækifæri til að læra af reyndari amatörum og taka þátt í að reka stöð og læra hvernig maður ber sig að. Undanfarin ár hafa einmitt þónokkrir amatörar tekið sín fyrstu sambönd í Knarrarósvita.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

PS: Reykjavíkurborg hefur séð að sér og ákveðið að færa Menningarnótt þannig hún rekst ekki á Vitahelgina í ár :)

20. júlí 2008

Útileikar 2008
Nú styttist í aðal helgi ársins, útileikahelgina, sem almenningur
kallar verslunarmannahelgina. Þessa helgi taka radíóamatörar á Íslandi sig til og setja upp stöðvar sínar hvar sem þeir kunna vera á ferðalagi og taka þátt í skemmtilegum leik.

Síðasta ár var metþáttaka. Ég skora á sem flesta að taka þátt, annaðhvort á ferðalagi eða heiman frá sér. Almennar upplýsingar um
útileikana má finna á vefsíðu félagsins:
http://www.ira.is/tf_utileikar.html

Einnig gæti verið fróðlegt að skoða samantekt TF3KX Kristins Andresen
á niðurstöðum útileikanna 2007. Þar er að finna mörg góð ráð um hvað
megi gera til að ná sér í sem flest stig.
http://video.google.com/videoplay?docid=-2257444490763735721&hl=en

Hlakka til að heyra í sem flestum í útileikunum.

73 de TF3HR Hrafnkell

PS: Verður einhver sem notar stafrænar mótunarðferðir í ár s.s. PSK?

5. júní 2008

Það er mér ánægja að tilkynna félagsmönnum að niðurstaða er fengin í húsnæðismál félagsins. Borgin hefur bæði hætt við að rífa húsið í Skeljanesinu svo og hætt við að flytja Gatnamálastjóra á svæðið. Við megum því halda áfram að nota aðstöðuna í húsinu undir starfsemi okkar.

Óvissan um húsnæði hefur verið félaginu erfið og því er það mikill léttir að þessi niðurstaða sé fengin. Vonandi fáum við frið í einhver ár.


View Larger Map

Nú þurfum við að spýta í lófana og koma aðstöðu okkar aftur í lag, þar með talið loftnetum. Stjórn mun skipuleggja það á næstunni. Ég treysti því að félagar verði tilbúnir til að taka þátt í því með okkur.

Áhugasamir um starfsemi félagsins eru alltaf velkomnir á félagskvöld okkar sem haldin eru öll fimmtudagskvöld kl. 20:00.

73 de TF3HRafnkell

26. maí 2008

Ný stjórn
Stjórn ÍRA fyrir starfsárið 2008-2009 var kjörin á aðalfundi félagsins 17. maí 2008. Nýja stjórnin hefur skipt með sér verkum, og hana skipa:
  • Hrafnkell Eiríksson formaður, TF3HR
  • Guðmundur Sveinsson varaformaður, TF3SG
  • Ársæll Óskarsson gjaldkeri, TF3AO
  • Guðmundur Löve ritari, TF3GL
  • Sveinn Bragi Sveinsson meðstjórnandi, TF3SNN


Á myndinni eru (frá vinstri): TF3SNN, TF3HP, TF3AO, TF3HR, TF3SG og TF3GL.

Varamenn eru:Haraldur Þórðarson, TF3HP og Jón Gunnar Harðarson , TF3PPN.

22. maí 2008

Nýtt fréttakerfi hjá Í.R.A.
Tilraunir eru að hefjast með nýtt fréttakerfi á vefsíðu Í.R.A.

Þetta ætti að gera miðlun upplýsinga til félagsmanna auðveldari og markvissari.

10. maí 2008

Aðalfundur félagsins Íslenskir Radíóamatörar
Aðalfundur ÍRA verður haldinn laugardaginn 17. maí kl. 14:00 í félagsheimili ÍRA í Skeljanesi. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórnin


WA7BNM Weekly Contest Calendar