Þetta heiðursskjal stóð til boða öllum radíóamatörum og hlusturum en umsóknarfresti lauk í lok júní 1996 og er því skjalið ekki gefið út lengur.
Heiðursskjalið var prentað fyrir hvern umsækjanda á 110 g/m² 297X210 mm sérstakan bleksprautupappír í þremur litum: bláum rauðum, og svörtum.
Heiðursskjal þetta var fyrst gefið út í júní 1994 og var fyrsti umsækjandi LA0BX, Sigfús Jónsson frá Noregi og alls voru umsækjendur 14.

REGLUR FYRIR HEIÐURSSKJALIÐ 50 ÁRA AFMÆLI ÍSLENSKA LÝÐVELDISINS
- Heiðursskjalið stendur til boða öllum amatörleyfishöfum og hlusturum.
- Sambönd þurfa að hafa verið höfð milli klukkan 00.00 1. janúar og klukkan 23.59 31. desember 1994.
- það eru engin tíðni eða mótunar takmörk.
- Kröfur:
- Hafa samband við eða heyra í að minnstakosti þrjár íslenskar amatör stöðvar.
- ATHUGIÐ: Sambönd við stöðvar sem eru /TF, TF/ gilda ekki fyrir þetta heiðursskjal.
- Samböndin þurfa ekki að vera staðfest en listi sem sýnir unna stöð, dagsetningu, ár, tíma, tíðni, styrk og læsileika merkis og mótun þarf að fylgja umsókn.
- Fyrsta skjalið sem gefið er út til hvers DXCC lands verður uppfært sem slíkt en það verða engar aðrar sérstakar uppfærslur.
- Gjald fyrir Heiðursskjalið "50 ÁRA AFMÆLI ÍSLENSKA LÝÐVELDISINS" er 8 IRCar eða jafngildi þeirra í íslenskum krónum á hverjum tíma.
- Umsóknir þurfa að hafa borist heiðursskjalastjóra fyrir lok júní 1994. Eftir þann tíma verður skjalið ekki gefið út.
- Allar fyrirspurnir og umsóknir á að senda til:
- Í.R.A. Awards Manager
Brynjólfur Jónsson
Pósthólf 121
602 Akureyri - Tölvupóstur