Íslenskir radíóamatörar / Icelandic Radio Amateurs

Díóða

Merki Í.R.A.

Í dag er

og klukkan er
 


Leita á síðunni
Search The Web Page

powered by FreeFind

Gestabók ÍRA
ÍRA Guestbook





Díóða er einátta straumleiðandi íhlutur líkt og hjólaventill sem leiðir loft einungis í aðra áttina og þess vegna verður að passa vel að tengja hana á réttan hátt í straumrás. Díóða hefur tvær tengingar, forskaut og bakskaut. Bakskautið er alltaf merkt með hring, bletti eða á einhvern annan hátt.

Díóður


Prentplatan eða tengistaður díóðu er oft merktur með + tákni þar sem tengja á bakskautið. Díóður eru til af öllum gerðum og stærðum. Þær eru oft merktar með gerðarnúmeri. Upplýsingar um nákvæma eiginleika díóðu er hægt að finna í bók frá framleiðanda. Ef þú veist hvernig á að mæla díóðu með viðnámsmæli þá skaltu mæla nokkrar til að læra hvernig þær virka. Góð díóða hefur hátt viðnám í lokuðu áttina en lágt í leiðniáttina. Nokkrar sérstakar gerðir af díóðum eru til svo sem ljósdíóður (Led) og spennufestidíóður (Zener).

Díóður

Til baka efst á síðu