Íslenskir radíóamatörar / Icelandic Radio Amateurs

3500-3850 kHz SSB, AM, CW viðtæki fyrir nýliða radíóamatöra

Merki Í.R.A.

Í dag er

og klukkan er
 


Leita á síðunni
Search The Web Page

powered by FreeFind

Gestabók ÍRA
ÍRA Guestbook





Teikningin af þessu viðtæki birtist í bókinni "Námsefni til nýliðaprófs", sem Kristján Benediktsson TF3KB gaf út í apríl 1977. Samsetningin var hönnuð af Karli Johanni Lilliendahl TF2KJ (nú TF3KJ) sérstaklega fyrir nýliða til að auðvelda þeim að koma sér upp góðu viðtæki á 80 metrum til viðtöku á SSB, AM og CW. Geta þessa tækis er alveg frábærlega góð og það er einfalt í uppsetningu.

Karl Jóhann var svo vinsamlegur að lána vefstjóra teikningar og leiðbeiningar til birtingar á vefsíðunni og kann ég honum bestu þakkir fyrir.

Í bréfi sem Karl Jóhann sendir með segir m.a. "Fyrstu 2 árin slökkti ég ekki á tækinu og það var í sambandi allan þennan tíma og varð ekki meint af. Og enn gengur það þó ég slökkvi á því af og til nú síðustu árin."

Það skal tekið fram að þetta er að sjálfsögðu barn síns tíma en er þó í fullu gildi enn í dag.

Teikningar og leiðbeiningar eru á 14 blaðsíðum sem eru jpg myndir. Þar sem hver mynd er dálítið stór eða 60-100 k hver þá eru sett upp frímerki eða "Thumbnails" fyrir hverja síðu í töfluni hér fyrir neðan. Með því að klikka á frímerkin þá hoppar upp stærri mynd. Síðan er hægt að loka þeim glugga og halda áfram.

3500-3850 kHz SSB, AM, CW viðtæki fyrir nýliða radíóamatöra
   


Til baka efst á síðu